uM AÐALBRAUT
02
nJÁLL gUNNLAUGSSON
Njáll Gunnlaugsson er fæddur 1967 og lauk ökukennaranámi frá Kennaraháskólanum árið 1998. Njáll kennir bæði á bíl og mótorhjól og hefur mikla akstursreynslu, meðal annars í gegnum starf sitt sem bílablaðamaður í áratugi
Fjölþætt reynsla
Hann hefur tekið þátt í akstursnámskeiðum hjá framleiðendum eins og BMW og Porsche á brautum og ís. Auk þess hefur Njáll sótt torfæruhjólanámskeið BMW í Hechlingen.
Bílablaðamennska
Njáll hefur ritstýrt DV-bílum, tímaritinu Bílar og Sport og billinn.is, skrifað fyrir bílablað Morgunblaðsins og er auk þess einn stofnanda Bandalags íslenskra bilablaðamanna (BÍBB).
Sagan rituð
Njáll er höfundur bókarinnar “Akstur og umferð bifhjóla” sem er sú kennslubók í mótorhjólaakstri sem að allir styðjast við í dag, en hann er einnig höfundur bókarinnar “Þá riðu hetjur um héröð” sem greinir frá 100 ára sögu mótorhjólsins á Íslandi.
ferðast hér
AÐALBRAUT