Ökunám
Bifhjólapróf
Mótorhjólapróf eða réttindi til að stjórna bifhjóli skiptast í þrennt, A1 A2 og A. A1 er fyrsta prófið fyriri 17 ára, A2 fyrir 19 ára og A réttindi má veita þeim sem er orðinn 24 ára en þó þeim sem orðinn er 21 árs, hafi hann í a.m.k. tvö ár haft ökuskírteini fyrir A2-flokk.
Bílpróf
Bílprófið í dag skiptist í tvennt, bóklegt og verklegt nám, en til viðbótar við það getur nemandinn sótt um æfingarakstur eftir að grunnþætti námsins er lokið. Nemandinn þarf að taka 15-24 kennslustundir að lágmarki samkvæmt námskrá.
Skellinöðrupróf
Skellinöðrupróf er hægt að taka þegar ökunemi er 15 ára. Skellinöðrupróf eru AM réttindi, þ.e. réttindi til að stjórna léttu bifhjóli (í L1e- og L2e-flokki), á tveimur eða þremur hjólum sem er hannað til að ná 45 km aksturshraða á klst.
Verðskrá
Verðskráin gefur þér viðmið um hvað kostar að taka bílpróf og mótorhjólapróf. Hver ökunemi tekur að lágmarki eins marga ökutíma og námsskrá segir til um eða eins marga og þú þarft til að verða öruggur ökumaður.
B
BíllA / A2
BifhjólAM
Létt bifhjólBóklegt, munnlegt, verklegt
Þegar þú tekur bifhjólapróf þá þarftu bæði að þreyta bóklegt próf og verklegt. Verklega prófið er bæði að svara munnlega ýmsum spurningum um mótorhjól og öryggi ásamt því að sannreyna færni þína í akstri mótorhjóls, innan brautar og í umferð. Æfðu þig!

Spurt og svarað
Spurningar og svör við munnlegum prófum fyrir bifhjól og skellinöðrupróf.

Verklegar æfingar
Verklegar æfingar fyrir mótorhjólapróf eru sýndar með myndböndum.
Um Aðalbraut
Njáll Gunnlaugsson er fæddur 1967 og lauk ökukennaranámi frá Kennaraháskólanum árið 1998. Njáll kennir bæði á bíl og mótorhjól og hefur mikla akstursreynslu, meðal annars í gegnum starf sitt sem bílablaðamaður í áratugi.
Hann hefur tekið þátt í akstursnámskeiðum hjá framleiðendum eins og BMW og Porsche á brautum og ís. Auk þess hefur Njáll sótt torfæruhjólanámskeið BMW í Hechlingen.

Netökuskólinn
Netökuskólinn er fjarnámsskóli sem býður upp á ýmis bókleg námskeið í tengslum við akstur og umferð.
Ökuskóli 1 og 2 ásamt bifhjólanámskeiðinu eru einnig til á ensku og pólsku.
Hægt er að hlusta á námsefnið.

Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar
Sniglarnir standa fyrir fjölbreyttum viðburðum og öflugu félagsstarfi árið um kring. Mótorhjólafólk hefur sýnt mikla samstöðu þegar kemur að hagsmunabaráttu þess.
Gakktu í hópinn.